Sorpa Lambhagavegur 14

Bygging endurvinnslustöðvar fyrir Sorpu að Lambhagavegi 14. Sjammi sér um allann framkvæmdarhluta verkefnisins. Endurvinnslustöð við Lambhagaveg tekur við flokkuðum úrgangi viðskiptavina Sorpu og mun þjóna um 50.000 íbúum á höfuðborgarsvæðinu. Undirstöður, botnplötur og stoðveggir eru staðsteyptir úr járnbentri steinsteypu og grundaðir á fyllingarpúða. Aðalburðarvirki veggja er úr staðsteyptri steinsteypu. Þak yfir aðalbyggingu og skyggni er gert úr þakeiningum og límtrébitum. Stálsúlur eru undir límtrébitum í skyggni. Þak og þakbitar í útigeymslu er staðsteypt úr járnbentri steinsteypu. Útveggir klæðast með yleiningum og timburklæðningu. Lóðin er að mestu malbikuð, rampur er á milli þjónustusvæðis og losunarsvæðis almennings. Svæðið verður afgirt og með rafmagnshliði við inn- og útkeyrslu við lóðarmörk.
Sjammi sá um
Hönnun
Framkvæmd
Byggingarstjórn
Byggingarár
2026
Verkkaupi
Sorpa
Tegund
Endurvinnslustöð
Staða verkefnis
Í framkvæmd

Myndasafn

No items found.